Alfreð Halldórsson sauðfjárbóndi (2009-2011)

Sérsýning um Alfreð Halldórsson sauðfjárbónda á Kollafjarðarnesi var sett upp í samvinnu við nemendur í Hagnýtri menningarmiðlun og var uppi þrjú sumur, 2009-2011. Sýningin var unnin af þeim Kristínu Jónsdóttur og Söru Regínu Valdimarsdóttur, en grunnur hennar var áður uppi á Þjóðminjasafninu sem hluti af sýningunni Lífshlaup.

Sýningin var opnuð formlega föstudaginn, 22. maí 2009, kl. 20:00. Afkomendur Alfreðs og Sigríðar Sigurðardóttur konu hans buðu gestum sýningarinnar upp á veglegar veitingar í tilefni opnunarinnar; kaffi og meðlæti eins og það tíðkaðist á Kollafjarðarnesi og gerðist hvað best á Ströndum. Einnig var tónlistaratriði og Jón Alfreðsson las vel valin brot úr dagbókum föður síns.

Alfreð Halldórsson var fæddur í Miðdalsgröf  22. maí 1902. Hann tók við þeirri jörð fyrir tvítugt í samvinnu við móðurbróður sinn. Hann kvæntist Sigríði Sigurðardóttur árið 1926. Þau fluttust að Stóra-Fjarðarhorni árið 1933 og bjuggu þar í tvíbýli til ársins 1955. Þá fóru þau að Kollafjarðarnesi þar sem þau byggðu upp allan húsakost fyrir stórt fjárbú og votheysverkun, en Alfreð var einn af frumkvöðlum hennar hér á landi. Á Kollafjarðarnesi bjuggu þau félagsbúi með syni sínum.

Alfreð fylgdist vel með öllu er viðkom búskapnum og hélt dagbók frá unga aldri. Hann taldi það skyldu hvers manns að sinna samfélagslegum störfum og sat hann í hrepps- og sýslunefnd um áraraðir. Árið 1975 hætti hann búskap og fluttist til Hólmavíkur ásamt konu sinni, þar sem hann bjó til dánardægurs árið 1981.