Svipmyndir úr sveitinni: Úr myndaalbúmi Rósu Jónídu frá Kirkubóli (2021-)

Sýning sett upp 2021 og opnuð 16. janúar á hátíðinni Vetrarsól. Sýningin er í veitingasalnum Kaffi Kind á Sauðfjársetrinu. Hún hefur yfirskriftina Svipmyndir úr sveitinni. Úr myndaalbúmi Rósu Jónídu á Kirkjubóli.

Opnunin var hluti af menningarhátíðinni Vetrarsól. Viðburðurinn var haldinn í raunheimum og tókst með lagni að halda sig við 20 manna fjöldatakmörk og fólk notaði grímur á meðan á heimsókn stóð. Bent var á að gaman væri að rölta frá Sævangi og skoða útisýninguna og listaverkin við Sjávarslóð, ef hinkra þyrfti eftir að gestum fækkaði í húsinu. Kaffi og kleinur voru á boðstólum við opnunina.

Á sýningunni eru 36 stækkaðar myndir á veggjum og skýringar í möppum. Tækifærið er notað til að safna frekari upplýsingum um myndirnar. Einnig eru 150 myndir til viðbótar á skjá. Sýningin verður uppi í Sauðfjársetrinu að minnsta kosti út sumarið 2021.