Liðnir viðburðir

Sögurölt við Tröllatungu (2018)

Þriðjudagskvöldið 31. júlí héldu Sögurölt um Dali og Strandir áfram og nú var gengið í nágrenni bæjarins Tröllatungu í Tungusveit á Ströndum. Hófst gangan á hlaðinu á bænum og var um að ræða auðvelda og þægilega göngu, við allra hæfi. Leiðsögumaður var Jón Jónsson þjóðfræðingur. Tröllatunga er sögufræg jörð í meira lagi. Þar var kirkjustaður til ársins 1909 og enn er vel hugsað um kirkjugarðinn sem er upp við húsið. Í nágrenninu eru ýmsar náttúruperlur og þjóðsagnastaðir sem heimsóttir voru í þessu stutta Sögurölti, þar má helst nefna Gvendarfoss, Gvendarbrunn, Gullhól og Grýlufoss.

Söguröltin eru haldin í samvinnu Strandamanna og Dalamanna, og standa Byggðasafn Dalamanna – Héraðsskjalasafn DalasýsluSauðfjársetur á Ströndum og Náttúrubarnaskólinn fyrir þeim. Góð mæting hefur verið í söguröltin í sumar og höfðu samtals 178 manns mætt í þær fimm gönguferðir sem voru að baki áður en gangan við Tröllatungu var haldin en þar voru um 50 manns.

Eftir gönguna var kvöldkaffi á boðstólum á Sauðfjársetrinu í Sævangi, fyrir þá sem vildu. Ekkert þátttökugjald er í sjálfri göngunni.