Liðnir viðburðir

220 manns á Furðuleikum á Ströndum

Furðuleikar Sauðfjársetursins á Ströndum eru venjulega lokaviðburður bæjarhátíðarinnar Hamingjudaga á Hólmavík sem haldnir voru um síðustu helgi. Þá er standandi kaffihlaðborð á boðstólum allan daginn og úti á velli leika börn og fullorðnir sér saman í ýmsum skringilegum  og skemmtilegum leikjum sem allir hafa gaman af að taka þátt í og horfa á. Þannig skemmta kynslóðirnar sér saman, efla hamingjuna og skapa skemmtilegar minningar.

Í ár voru keppnis- og sýningargreinarnar Stígvélakast, Öskur, Trjónufótbolti, Glasaburður, Spin-it to Win-it og Sokkabuxnakeila.

Aðsókn var góð og stöldruðu um 220 manns við í Sævangi yfir daginn.