Fréttir

Opið fram í september

Enn er talsverð traffík ferðafólks og verður Sauðfjársetrið því opið eitthvað fram í septembermánuð á hefðbundnum tíma 10-18 alla daga. Sumarið hefur verið gott, gestakomur fjölmargar og mikið að gera á sýningunni og kaffistofunni Kaffi Kind. Miklu munar um skemmtiferðaskipin sem hafa sett farþegar sína í land hérna hjá okkur og þannig bættust þúsundir gesta við á Sauðfjársetrinu á þessu sumri.

Viðburðir eru einnig framundan, Þjóðtrúarkvöldvaka laugardaginn 7. sept. og réttarkaffi 22. sept. Hin árlega sviðaveisla er svo á dagskránni 19. október.