Lífið fyrir umbreytinguna (2020)
Lífið fyrir umbreytinguna er ljósmyndasýning Yrsu Roca Fannberg með mögnuðum myndum úr Árneshreppi á Ströndum. Sýningin var sett upp vorið 2020 og opnuð hálfpartinn í kyrrþey út af kórónaveirunni sem þá setti samfélagið á annan endann. Sýningin var uppi allt sumarið 2020 og fram á haustið. Þá var henni pakkað niður og ný ljósmyndasýning sett upp í veitingasalnum Kaffi Kind.
Á sýningunni voru margvíslegar myndir úr Árneshreppi teknar á síðustu árum. Yrsa vann þá að gerð heimildamyndar í Árneshreppi, Síðasta haustið, sem sagði frá búskapnum á Krossnesi og endalokum hans.
Sýningin var sett upp á Sauðfjársetrinu í samvinnu við ljósmyndarann Yrsu Rocka Fannberg, Þjóðminjasafn Íslands og Rannsóknasetur HÍ á Ströndum – Þjóðfræðistofu. Hún hafði áður verið uppi á Þjóðminjasafninu. Sýningin er hluti af öndvegisverkefninu Menningararfur í ljósmyndum sem Sauðfjársetrið og Rannsóknasetrið standa saman af og er styrkt af Safnasjóði.