Fréttir

Réttarkaffi í Sævangi 22. sept. kl. 13-18

Réttardagur verður í Kirkjubólsrétt sunnudaginn 22. september næstkomandi og hefjast réttarstörfin kl. 14. Reynir Björnsson er réttarstjóri.

Að sjálfsögðu verður dýrindis réttarkaffi á boðstólum af því tilefni í Sauðfjársetrinu í Sævangi og stendur frá 13-18, en opið er frá kl. 10 um morguninn. Kaffihlaðborð kostar kr. 2.800 fyrir 13 ára og eldri kr. 1.800 fyrir 6-12 ára og frítt fyrir yngri. Verið öll hjartanlega velkomin.