Myndir
Sauðfjársetrið safnar gömlum ljósmyndum úr héraðinu og sú söfnun er ekki eingöngu bundin við sauðfjárbúskapinn. Allar myndir sem tengjast Ströndum eru vel þegnar. Hafið samband í gegnum síma (693-3474), fésbókina eða í netfangið saudfjarsetur@saudfjarsetur.is ef þið viljið færa safninu myndir.
Hér er að finna tengla inn á nokkrar myndasyrpur, í fyrsta lagi gamlar myndir, í annan stað úr samtímasöfnun eftir að Sauðfjársetrið var stofnað og í þriðja lagi myndir frá starfi og viðburðum Sauðfjársetursins. Fleiri myndir má svo finna á sameiginlegri skráningarsíðu safna á Íslandi sem er á slóðinni Sarpur.is. Þar hafa margar myndir Sauðfjársetursins verið settar inn og hægt að fletta þeim, skoða upplýsingar og gjarnan bæta við.
Margir Strandamenn hafa sérlega gaman af gömlum ljósmyndum og hópurinn Gamlar Strandamyndir á Facebook er feykivinsæll. Þar voru yfir 4 þúsund manns samankomin í einum hópi vorið 2022. Það eru einmitt Sauðfjársetur á Ströndum og Rannsóknasetur HÍ á Ströndum – Þjóðfræðistofa sem halda þessum hópi úti. Hópurinn kemur sér mjög vel þegar þarf að greina myndefni og margir aðrir en safnið deila skemmtilegum gömlum myndum þar inn. Hér eru nokkrar myndasyrpur úr safni Sauðfjársetursins, gamlar ljósmyndir sem gott fólk hefur gefið okkur.
- Myndasyrpa frá Kirkjubóli – Úr myndasafni Rósu Jónídu
- Gamlar myndir frá Tröllatungu – Myndir frá Stefáni Daníelssyni
- Úr sláturhúsvinnu á Óspakseyri 1975 – Myndir frá Sigmundi Sigurðssyni
- Myndasyrpa frá Kollafirði og Bitru – Myndir frá Ásdísi Jónsdóttur
- Réttarmyndir úr Fellsrétt – Myndir frá Ásdísi Jónsdóttur
- Mannlíf í Skarðsrétt – Myndir frá Halldóri Þorsteinssyni
- Hrútasýning í Árneshreppi – Myndir frá Pálma Guðmundssyni
- Úr Kirkjubólsrétt 1994 – Ljósm. Guðlaugur Þór Þórarinsson
- Sláturhúsið á Borðeyri – Ljósm. Gunnar Sæmundsson
- Úr sláturhúsvinnu á Hólmavík – Myndir frá Mörtu og Magnúsi á Stað
- Kjósarrétt í Árneshreppi – Ljósm. Sævar Benediktsson
Hér eru líka tenglar inn á nokkrar myndasyrpur frá samtímasöfnun Sauðfjársetursins sem nær til ljósmynda eftir 2000, enda var safnið ekki stofnað fyrr en á þessari öld. Það er alveg merkilegt hvað ljósmyndir eru fljótar að verða dýrmætar.
- Kirkjubólsrétt 2001
- Staðarrétt 2012 – ljósm. Ester Sigfúsdóttir
- Smalað í rigningu í Steinadal 2012 – ljósm. Jón Jónsson
- Réttað í nýrri Kirkjubólsrétt 2016 – ljósm. Jón Jónsson
- Staðarrétt 2018
Myndir frá viðburðum á vegum Sauðfjársetursins frá því að það hóf starfsemi sína er að mestu leyti að finna undir tenglinum Viðburðir –> Liðnir viðburðir, en hér eru tenglar á nokkra vel valda og mikið myndskreytta viðburði, til fróðleiks og skemmtunar.
- Fyrstu hrútadómarnir 2003 – ljósm. Kristín Sigurrós Einarsdóttir
- Furðuleikar 2007 – ljósm. Jón Jónsson
- Ull í fat 2007 – ljósm. Ásdís Jónsdóttir og Jón Jónsson
- Fjörudagur 2009 – ljósm. Ester Sigfúsdóttir
- Furðuleikar 2010 – ljósm. Jón Jónsson
- Hrútadómar 2010 – ljósm. Jón Jónsson og Arnar S. Jónsson
- Hrútadómar 2015 – ljósm. Dagrún Ósk og Jón Jónsson