Liðnir viðburðir

Spilavist í Sævangi (2019)

Félagsvist var haldin í Sævangi, föstudaginn 20. des. 2019. Spilamennskan hófst að venju kl. 20:00. Strandamenn eru duglegir að spila og hittast reglulega yfir háveturinn í spilavist í Sævangi. Eins eru þeir duglegir að sækja slíka viðburði í önnur héruð í nágrenninu.

Bridgefélag er starfandi á Hólmavík, líklega það eina á Vestfjörðum þar sem menn hittast ennþá reglulega einu sinni í viku yfir veturinn til að spila (á mánudagskvöldum). Þeir viðburðir fara fram í flugstöðinni á Hólmavík.

Verð var kr. 1.300.- fyrir 13 ára og eldri, 900 fyrir yngri, veitingar innifaldar!