Réttað verður í Kirkjubólsrétt við Steingrímsfjörð á Ströndum sunnudaginn 20. september og hefjast réttarstörfin kl. 14:00. Réttarstjóri er Reynir Björnsson.
Vöfflur, kaffi og heitt súkkulaði á boðstólnum í Sauðfjársetrinu, kr. 1.500 fyrir 13 ára og eldri, 1.000 fyrir 7-12 ára og frítt fyrir yngri. Opið á Sauðfjársetrinu á sunnudaginn frá kl. 12:00-17:00.
Öll velkomin, en munum að huga vel að sóttvörnum.