Liðnir viðburðir

Réttarkaffi í Sævangi (2017)

Réttað var í Kirkjubólsrétt við Steingrímsfjörð á Ströndum sunnudaginn 17. september og byrjaði fjörið kl. 14. Fádæma veðurblíða var og mikið fjölmenni á staðnum. Réttarstörfin gengur því vel fyrir sig og margir sem lögðu hönd á plóginn.

Af þessu tilefni var Sauðfjársetrið með réttarkaffi frá kl. 13-17 og voru því gerð góð skil eftir vel heppnaðar réttir. Verð fyrir kaffihlaðborð var kr. 1.800.- fyrir fullorðna, kr. 1.000 fyrir 6-12 ára og frítt fyrir yngri.

Reynir Björnsson í Miðdalsgröf var réttarstjóri í Kirkjubólsrétt.