Liðnir viðburðir

Gönguferð út að Stigakletti (2017)

Sunnudaginn 8. október kl. 13 var í boði gönguferð í tilefni af Evrópsku menningarminjadögunum 2017. Það var Einar Ísaksson minjavörður Vestfjarða sem leiddi göngu frá gamla bænum á Broddadalsá út á Stiga að leiði Brodda. Farið var yfir sögusagnirnar um Brodda og tilgátur um tilurð og val á staðsetningu fyrir þessa meintu fornaldardys út frá fornleifafræðilegum sjónarmiði. Gangan tók um 90 mínútur, allir voru velkomnir og fólk minnt á að vera vel búið.