Liðnir viðburðir

Íslandsmeistarmót í hrútaþukli (2017)

Það var sannkölluð stórhátíð í Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum sunnudaginn 20. ágúst. Þá var í fimmtánda skipti haldið Íslandsmeistaramót í hrútadómum og hófst skemmtunin kl. 14. Þessi íþróttagrein sem í daglegu tali er kölluð hrútaþukl er uppfinning Strandamanna og hefur verið haldin árlega á Sauðfjársetrinu frá árinu 2003.

Kaffihlaðborð og kjötsúpa var í boði á Sauðfjársetrinu og ókeypis inn á safnið og sýningar þess. Þar var m.a. hægt að skoða fastasýninguna Sauðfé í sögu þjóðar og tvær sérsýningar sem heita Álagablettir og Sumardvöl í sveit, en sú síðastnefnda var opnuð haustið 2016 eftir síðustu hrútadóma. Samhliða hrútadómunum var haldið stórhappdrætti í tilefni dagsins og í vinning voru úrvals líflömb af Ströndum og úr Reykhólasveit og Djúpi. Miðar í lambahappdrættinu voru seldir á staðnum, en fyrir þá sem komust ekki á staðinn var líka hægt að kaupa miða með því að hringja í Ester framkvæmdastjóra.

Hrútadómarnir fara þannig fram að helstu sauðfjárspekúlantar landsins sem jafnframt eru í dómnefnd velja og meta fjóra íturvaxna Strandahrúta með öllum nútíma tækjum og tólum. Dómnefndin gefur þeim stig fyrir ýmsa eiginleika eftir stigakerfi sem bændur og vanir hrútaþuklarar kunna og raðar þeim í gæðaröð. Oftast eru valdir dálítið ólíkir hrútar, alls ekki þeir fjórir bestu. Síðan reyna keppendur sig við matið á hrútunum með hendurnar einar og hyggjuvitið að vopni og reyna að komast að sömu niðurstöðu og dómararnir.

Keppt er í tveimur flokkum og allir geta verið með. Þeir sem kunna ekki á stigakerfið keppa í flokki sem kenndur er við óvana og þeir eiga að raða hrútunum í röð eftir því hversu miklir gæðagripir þeir eru og útskýra hvernig þeir fundu röðina út. Þeir sem keppa um Íslandsmeistaratitilinn þurfa hins vegar að dæma hrútana eftir stigakerfinu sem bændur gjörþekkja. Afar veglegir vinningar eru í boði fyrir sigurvegara í báðum flokkum.

Fyrir utan heiðurinn af því að standa uppi sem Íslandsmeistari í hrútadómum fékk sigurvegarinn einnig til varðveislu í eitt ár verðlaunagripinn Horft til himins sem hagleiksmaðurinn Valgeir Benediktsson í Árnesi í Trékyllisvík hannaði og gefin var af búnaðarsambandi Strandamanna árið 2005 til minningar um Brynjólf Sæmundsson héraðsráðunaut Strandamanna í 40 ár.

Það var Guðbrandur Sverrisson sem stóð uppi sem hrútameistari að þessu sinni. Þetta er í annað skipti sem hann sigrar í þessari keppni. Í öðru sæti í flokki vanra þuklara varð Árný Huld Haraldsdóttir á Bakka í Geiradal og í þriðja sæti varð Ragnar Bragason á Heydalsá. Í óvana flokknum sigraði borgarbarnið Jón Kristófer Fasth. Í öðru sæti varð Sigríður Övarsdóttir sem var því miður farin af svæðinu þegar verðlaunaafhending fór fram og í þriðja sæti varð Elín Þóra Stefánsdóttir í Bolungarvík.

Á síðasta ári sigraði kona í fyrsta skipti í hrútadómunum við mikinn fögnuð viðstaddra, Hadda Borg í Þorpum. Strandamenn eru jafnan sérlega áhugasamir um að halda titlinum innan sýslumarkanna, en það hefur reyndar ekki alltaf gengið eftir. Ötulastir við það hafa verið bændurnir á Melum í Árneshreppi, en Kristján Albertsson hefur unnið keppnina fjórum sinnum og Björn Torfason tvisvar. Sumum aðkomumönnum finnst Strandamenn reyndar hafa dálítið forskot í keppninni, vegna þekkingar þeirra á ættum og uppruna hrútanna og líka vegna þess að handföngin (eða hornin) vanti sé miðað við slíka gripi í þeirra heimasveitum.

Vinninga í hrútaþuklinu gáfu Sauðfjársæðingastöð Vesturlands, Hótel Djúpavík, Hólmadrangur, Bleksmiðjan (sem gaf sigurvegara í flokki vanra inneign í húðflúr) Norðursalt, Skógrækt ríkisins (sem gaf trjáplöntur), Matthías Lýðsson, Klúkubúið, Sauðfjársetur á Ströndum og Náttúrubarnaskólinn.

Þeir sem hafa unnið mótið og þar með Íslandsmeistaratitilinn til þessa eru:

2017: Guðbrandur Sverrisson, Bassastöðum í Kaldrananeshreppi
2016: Hadda Borg Björnsdóttir, Þorpum í Strandabyggð
2015: Guðmundur Gunnarsson, Kjarlaksvöllum í Saurbæ
2014: Björn Þormóður Björnsson, Ytra-Hóli í Austur-Húnavatnssýslu
2013: Kristján Albertsson, Melum í Árneshreppi
2012: Kristján Albertsson, Melum í Árneshreppi
2011: Guðbrandur Sverrisson, Bassastöðum í Kaldrananeshreppi
2010: Elvar Stefánsson, Bolungarvík
2009: Guðbrandur Björnsson, Smáhömrum í Strandabyggð
2008: Björn Torfason, Melum í Árneshreppi
2007: Kristján Albertsson, Melum í Árneshreppi
2006: Kristján Albertsson, Melum í Árneshreppi
2005: Björn Þormóður Björnsson, Ytra-Hóli í Austur-Húnavatnssýslu
2004: Eiríkur Helgason, Stykkishólmi, og Björn Sigurvaldason, Litlu-Ásgeirsá í Húnaþingi vestra
2003: Björn Torfason, Melum í Árneshreppi