Liðnir viðburðir

Sævangur 60 ára

Um helgina voru liðin 60 ár síðan félagsheimilið Sævangur var vígt árið 1957. Af því tilefni var kaffihlaðborð á boðstólum hjá Sauðfjársetrinu laugardaginn 15. júlí frá kl. 14-18 og viðburður kl. 16 þar sem sagt var frá og spjallað um Sævang.

Verð fyrir hlaðborðið er kr. 1.800.- fyrir fullorðna og 1.000.- fyrir 7-12 ára, frítt fyrir yngri. 

Sauðfjársetrið óskar einnig eftir gömlum myndum sem tengjast Sævangi til að skanna og varðveita. Tekið verður á móti myndum um helgina.