Liðnir viðburðir

Sögurölt: Stað í Steingrímsfirði

Fimmtudaginn 18. júlí kl. 19:30 var vikulegt Sögurölt á dagskránni, en Byggðasafn Dalamanna og Sauðfjársetur á Ströndum standa fyrir þeim viðburðum í samvinnu við fleiri. Nú var gengið um holt og hæðir við Stað í Steingrímsfirði, í talsverðum vindi, auk þess sem kirkjugarðurinn og Staðarkirkja var skoðuð. Yfirdrifið er af sögum og sögnum sem tengjast bænum og kirkjunni, en sögumaður var Jón Jónsson þjóðfræðingur.