Liðnir viðburðir

Fagurfræði hversdagsins – kvöldvaka (2019)

Kvöldvaka með yfirskriftinni Fagurfræði hversdagsins var haldin á Sauðfjársetri á Ströndum mánudagskvöldið 16. desember 2019. Þar var sagt frá persónulegum heimildum frá 19. öld, bréfum og dagbókum!

Þau sem fluttu erindi á kvöldvökunni voru Rósa Þorsteinsdóttir þjóðfræðingur, Davíð Ólafsson sagnfræðingur, Jón Jónsson þjóðfræðingur og Eiríkur Valdimarsson þjóðfræðingur.

Sauðfjársetrið hafði á boðstólum heitt súkkulaði, jólaköku og kleinur, til að maula á með fróðleiknum.

Kvöldvakan var haldin í samvinnu Sauðfjárseturs á Ströndum, Rannsóknaseturs HÍ á Ströndum – Þjóðfræðistofu og Fjölmóðs – fróðskaparfélags á Ströndum. Vel var mætt og fólk skemmti sér ljómandi vel yfir fróðleiknum. Viðburðurinn er styrktur af Uppbyggingarsjóði Vestfjarða og Safnasjóði.