Liðnir viðburðir

Draugasaga – 3. sýning

Fimmtudaginn 15. okt. var einleikurinn Draugasaga sýndur í þriðja sinn í Sævangi og hófst sýningin kl. 20. Súpa var í boði á Sauðfjársetrinu á undan.

Það er Leikfélag Hólmavíkur sem setur verkið upp í samvinnu við Sauðfjársetur á Ströndum. Leikritið Draugasaga er eftir Jón Jónsson þjóðfræðing á Kirkjubóli og var skrifað á síðasta ári. Það byggir á þjóðsögum af svæðinu, sígildri mannvonsku og margvíslegum myrkraverkum fyrri alda. Verkið er ekki við hæfi barna 12 ára og yngri.

Jón Jónsson leikstýrði sjálfur uppsetningunni, en Arnór Jónsson var leikarinn. Hemúllinn samdi hljóðmyndina, Asta Thorisdottir og Ester Sigfúsdóttir sáu um förðun og Jón Valur Jónsson um tæknimál með Jóni leikstjóra.