Liðnir viðburðir

Draugasaga frumsýnd í Sævangi

Miðvikudagskvöldið 7. okt. var einleikurinn Draugasaga frumsýndur í Sævangi. Það er Leikfélag Hólmavíkur sem setur verkið upp í samvinnu við Sauðfjársetur á Ströndum. Leikritið Draugasaga er eftir Jón Jónsson þjóðfræðing á Kirkjubóli og var skrifað á síðasta ári. Það byggir á þjóðsögum af svæðinu, sígildri mannvonsku og margvíslegum myrkraverkum fyrri alda. Verkið er ekki við hæfi barna 12 ára og yngri.

Á frumsýningunni var mæting kl. 20:00 og þá var súpa á boðstólum fyrir sýningu og svo kaffi á eftir og aðgöngumiðinn kostaði 2.800.- með veitingum. Sýningin sjálf er um klukkustund. Jón Jónsson leikstýrði sjálfur uppsetningunni, en Arnór Jónsson var leikarinn. Hemúllinn samdi hljóðmyndina, Asta Thorisdottir og Ester Sigfúsdóttir sáu um förðun og Jón Valur Jónsson um tæknimál með Jóni leikstjóra.

Sú nýbreytni var í leikhúsinu að þessu sinni sérstök forsýning á stykkinu var síðasta laugardag, en slíkt er ekki venja með leikrit. Þar mættu þjóðfræðinemar við HÍ sem voru í haustferð um Strandir. Sú prufusýning heppnaðist ljómandi vel. Þjóðfræðinemarnir eru í nemendafélaginu Þjóðbrók og gerðu víðreist um Strandir, gengu m.a. á fjöll og heilsuðu upp á tröllskessuna Þjóðbrók sem stendur í Þjóðbrókargili upp af Selárdal.