Liðnir viðburðir

Sögurölt á Bjarnastöðum í Saurbæ (2019)

Sögurölt Sauðfjárseturs á Ströndum og Byggðasafns Dalamanna var í dag miðvikudaginn 26. júní kl. 19:30 á Bjarnastöðum í Saurbæ, í samvinnu við Hugrúnu og Guðmund bændur á Kjarlaksvöllum.

Rölt var frá hliðinu að Bjarnastöðum, um landnámsjörð Sléttu-Bjarna, skoðaðar friðlýstar hofrústir, dys Bjarna og annað sem á veginum varð og gaf tilefni til að staldra við og segja sögur. Þetta er stutt og þægilegt rölt og fótafúnir gátu auðveldlega sleppt þeim stutta hluta sem var á fótinn. Dalamenn, Strandamenn, íbúar Reykhólahrepps og aðrir góðir gestir eru ávallt velkomnir í söguröltin sem eru í boði safnanna og engin fjárútlát fylgja því að taka þátt.