Liðnir viðburðir

Sögurölt: Tröllaskoðun í Kollafirði (2018)

Söguröltið á Ströndum og í Dölum heldur áfram og þriðjudaginn 17. júlí var farið í Tröllaskoðunarferð í Kollafirði á Ströndum. Lagt var af stað kl 19:30 frá veginum, ofan við Drangavík, innan við túnið á Kollafjarðarnesi. Þaðan var gengið eftir gömlum vegslóða niður í Drangavík og heilsað upp á tröllin sem urðu þar að steini laust eftir landnám. Sagðar voru margvíslegar tröllasögur um Kollfirðinga fyrr og nú – ástir þeirra og örlög – auk þess sem álög og örnefni komu við sögu. Þau sem vildu gátu snúið við hjá Forvaðanum sem er þarna rétt í grenndinni, en þau sem voru léttari á fæti genguinn Kollafjörðinn að eyðibýlinu Hlíð eftir gamla veginum í fjöruborðinu, um þrjá kílómetra. Niðurstaðan varð sú að allir löbbuðu áfra.

Jón Jónsson þjóðfræðingur á Kirkjubóli var leiðsögumaður í göngunni. Söguröltin eru haldin í samvinnu Strandamanna og Dalamanna, og eiga Byggðasafn Dalamanna og Sauðfjársetur á Ströndum frumkvæði að þeim í samvinnu við ýmsa aðila, að þessu sinni Náttúrubarnaskólann og Rannsóknasetur HÍ á Ströndum – Þjóðfræðistofu. Kvöldkaffi var á boðstólum á Sauðfjársetrinu í Sævangi að göngu lokinni.