Liðnir viðburðir

Þjóðtrúarkvöldvaka: Á mörkum lífs og dauða (2018)

Laugardagskvöldið 8. september 2018 var haldin árleg þjóðtrúarkvöldvaka í félagsheimilinu Sævangi við Steingrímsfjörð á Ströndum. Kvöldvakan bar að þessu sinni yfirskriftina: Á mörkum lífs og dauða.

Yfirleitt hefur verið rætt um óvenjuleg og stundum dálítið ógnvænleg efni á þessum kvöldvökum og svo var áfram. Fyrirlesarar á kvöldvökunni að þessu sinni voru:

Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur – Er andi í glasinu?
Jón Jónsson þjóðfræðingur hjá Þjóðfræðistofu – Ýluskarð og Skæluklöpp: Útburðir í íslenskri þjóðtrú
Sigurjón Baldur Hafsteinsson prófessor í safnafræði við HÍ – Bara annarsstaðar: Um ljósmyndir af látnum.

Kvöldvakan hófst kl. 20:00. Á boðstólum var kynngimagnað kvöldkaffi og tónlistaratriði til skemmtunar sem Skúli Gautason sá um. Verð fyrir veitingar var kr. 1.800.- en frítt er á viðburðinn sjálfan. Það voru Rannsóknasetur HÍ á Ströndum – Þjóðfræðistofa, Sauðfjársetur á Ströndum og Fjölmóður – fróðskaparfélag á Ströndum sem unnu saman að viðburðinum.