Liðnir viðburðir

Útgáfuviðburður: Strandir 1918

Sunnudaginn 6. desember kl. 14:00 var haldið rafrænt útgáfuhóf fyrir bókina Strandir 1918, í beinni útsendingu á Fésbókinni. Sagt var frá nýútkominni bókinni og höfundar lásu upp. Á sunnudaginn milli kl. 14:30-17:00 var svo hægt að koma við í Hnyðju (Höfðagötu 3 á Hólmavík) og kaupa eintak af bókinni.

Eins er hægt að leggja inn pantanir hjá Sauðfjársetrinu. Eingöngu er hægt að kaupa bókina beint frá Sauðfjársetri á Ströndum sem er útgefandi ásamt Rannsóknasetri HÍ á Ströndum – Þjóðfræðistofu. Hún verður ekki til sölu í bókabúðum, alla vega ekki fyrir jól.

Í bókinni Strandir 1918 birtast fræðigreinar, ferðasögur og dagbókarbrot frá árinu 1918. Ritstjóri er Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur og hún er einnig höfundur greinar í bókinni, eins og Eiríkur Valdimarsson, Hafdís Sturlaugsdóttir og Jón Jónsson. Þá skrifar forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson formála að bókinni.

Árið 1918 var merkilegt ár í sögu þjóðarinnar. Ísland fékk fullveldi og ýmsir stórviðburðir settu svip á mannlíf og samfélag. Hér er athygli beint að viðburðum og daglegu lífi á Ströndum á þessum tíma, birtar dagbækur, ferðasögur og fræðigreinar. Fjallað er um líf og störf fólks í Strandasýslu fyrir rúmri öld, á tímum sem standa okkur býsna nærri. Samt er margt við daglegt amstur fólks fyrir 100 árum framandi í samtímanum.

Hér má fylgjast með stuttum kynningum höfunda á útgáfudaginn:

https://www.facebook.com/saudfjarsetur/videos/717454942227420