Liðnir viðburðir

Árleg sviðaveisla haldin í Sævangi (2017)

Árleg sviðaveisla var haldin í Sauðfjársetrinu á Ströndum í Sævangi síðasta vetrardag við mikinn fögnuð viðstaddra. Þetta er í sjötta skipti sem sviðaveisla er haldin og var húsfyllir á skemmtuninni. Gestir gæddu sér á nýjum, reyktum og söltuðum sviðum, rjúkandi heitum sviðalöppum og nýrri og reyktri sviðasultu. Í eftirrétt var síðan Sherry-frómas, ávaxtagrautur og hinn sívinsæli blóðgrautur sem er jafnan á boðstólum. Reyktu og söltuðu sviðin koma frá Húsavíkurbúinu við Steingrímsfjörð og það eru Hafdís Sturlaugsdóttir og Matthías Lýðsson sem verka þau. Þessar veislur hafa verið vinsælar og vel sóttar síðustu árin enda mikil upplifun fyrir bragðlaukana.

Skemmtiatriði, söngur og sprell verða einnig á dagskránni og að venju var einnig spilað bingó! Að venju sáu heimamenn um veislustjórn og skemmtiatriði, Jón Jónsson þjóðfræðingur á Kirkjubóli var veislustjóri í forföllum Miðhúsabóndans síkáta, Viðars Guðmundssonar, og Skagfirðingurinn og Strandamaðurinn Eiríkur Valdimarsson á Hólmavík var ræðumaður kvöldsins. Kristín Einarsdóttir og Gunnar Jóhannsson í Hveravík sáu um tónlistaratriði og skemmtisögur. Allt var það ljómandi vel heppnað og bráðskemmtilegt. Margir leggja hönd á plóginn við undirbúning veislu eins og þessar og er öll sú fyrirhöfn unnin í sjálfboðavinnu og sama gildir um þá sem troða upp. Vill Sauðfjársetrið þakka þeim sem koma að veislunni kærlega fyrir alla aðstoðina og gestum fyrir komuna.

Miðaverð var kr. 5.000.- Húsið opnaði kl. 19:00 og borðhald hófst kl. 20:00.

Sviðaveisla Sauðfjársetursins var haldin í Sævangi á