Liðnir viðburðir

Árlegir Furðuleikar á sínum stað: Öskur, hringavitleysa og tímasóun (2018)

Hinir árlegu Furðuleikar á Sauðfjársetrinu í Sævangi voru á sínum stað á sunnudeginum um Hamingjuhelgina og hófst gleðin klukkan 13. Margar skemmtilegar keppnisgreinar, bæði gamalkunnar og nýjar voru þar á dagskránni og glæsilegt kaffihlaðborð á boðstólum. M.a. var keppt í Öskri, Stígvélaþeyting, Hringavitleysu og Tímasóun, en sigurvegari í síðastnefndu keppnisgreininni fékk glæsilegt úr frá 24 Iceland í verðlaun, splunkunýja tegund sem heitir Gabríella. Einnig var úrslitaleikur í Heimsmeistaramótinu í Trjónufótbolta á dagskránni.