Liðnir viðburðir

Dagbókarrölt við Steingrímsfjörð (2018)

Farið var í sögurölt við Steingrímsfjörð á Ströndum mánudaginn 2. júlí kl. 19.30 og lagt af stað frá Húsavíkurkleif, rétt sunnan við bæinn Húsavík. Gangan var skipulögð í samstarfi Byggðasafns Dalamanna, Sauðfjárseturs á Ströndum, Rannsóknaseturs HÍ á Ströndum – Þjóðfræðistofu og Náttúrubarnaskólans. Söfnin hafa tekið höndum saman um vikulegt sögurölt í Dölum og á Ströndum í sumar, í samvinnu við ýmsa aðila. Síðast var fjölmenni í stórvel heppnuðu fornleifarölti í Ólafsdal í Gilsfirði síðastliðinn mánudag.

Í göngunni á mánudaginn var lagt upp hjá Húsavíkurkleif sem er merkur fundarstaður steingervinga. Þaðan lá leiðin eftir fjörunni út með firðinum og skammt frá eru tóftir af byggingum í Naustavík, en engin hús standa þar uppi lengur. Sagt var frá íbúum í Naustavík, m.a. Grafar-Jóni gamla, en hann skyldi eftir sig stórmerkilega dagbók frá því um og eftir miðja 19. öld og á fjölmarga afkomendur á Ströndum. Nú er unnið að því að skrifa dagbókina hans upp á vegum Rannsóknaseturs HÍ á Ströndum. Fylgdarhamar, Einbúinn og Elísuboði eru þarna í grennd og sögur tengdar öllum þessum stöðum.

Gestir höfðu síðan val um að rölta í rólegheitum til baka í bílinn frá Naustavík eða ganga áfram að Sauðfjársetrinu í Sævangi (alls 3 km, auðveld ganga). Þaðan var bílstjórum skutlað til baka í bíla. Fleiri sögustaðir eru á leiðinni, m.a. aftökustaðurinn Lákaklettur við Miðdalsána.

Leiðsögumaður var Jón Jónsson þjóðfræðingur, Sauðfjársetrið seldi þeim sem vildu kaffi og kökur í Sævangi eftir göngu og var fjölmenni þar í kaffi. Ef menn vilja athuga hvort þeir séu afkomendur Grafar-Jóns gamla, þá er að kíkja í Íslendingabók – Jón Jónsson fæddur 14. júlí 1795, dáinn 3. júní 1879.