Liðnir viðburðir

Dagur hinna villtu blóma í Sævangi (2017)

Sunnudaginn 18. júní var dagur hinna villtu blóma! Í tilefni þess stóðu Náttúrubarnaskólinn og Náttúrustofa Vestfjarða fyrir blómagöngu undir leiðsögn Hafdísar Sturlaugsdóttur. Mæting var á Sauðfjársetrinu í Sævangi kl. 14:00 og var gengið um nágrennið og áhersla lögð á bersvæðisplöntur. Eftir gönguna voru kökur og kaffi á boðstólum á Sauðfjársetrinu og verðið var 1.200 kr., en frítt var í gönguna sjálfa og allir hjartanlega velkomnir.