Liðnir viðburðir

Þjóðhátíðarkaffi á Sauðfjársetrinu (2017)

Það var að venju veglegt þjóðhátíðarkaffihlaðborð á boðstólum á Sauðfjársetrinu í Sævangi laugardaginn 17. júní. Hlaðborðið stóð frá kl. 14:00-18:00 Skúli Gautason mætti með gítarinn kl. 15:00. Verðið fyrir veitingarnar var 1.800.- fyrir 13 ára og eldri og 1.000.- fyrir 7-12 ára. Hefðbundin skemmtiatriði voru ekki á dagskrá á Hólmavík að þessu sinni.