Liðnir viðburðir

Fornleifarölt í Sandvík (2018)

Sögurölt og fornleifaganga um Sandvík var á dagskránni föstudaginn 17. ágúst frá 18-20. Bergsveinn Birgisson fræðimaður og rithöfundur sagði þar frá rannsókn sem er þarna í gangi ásamt fornleifafræðingum sem eru þarna að störfum. Rannsóknin er mjög spennandi því vísbendingar hafa fundist um að bær hafi verið þarna í Sandvíkinni á landsnámsöld, en engar ritaðar heimildir benda til þess. Mæting var við Bakkagerði, neðan við Bæ á Selströnd, en fornleifaröltið var eitt af söguröltum safnanna.

Söguröltið var einnig i tengslum við málþing sem haldið var í Hveravík við Steingrímsfjörð laugardaginn 18. ágúst frá 11-16. Sögurölt um Dali og Strandir er samvinnuverkefni Byggðasafns Dalamanna, Sauðfjárseturs á Ströndum og Náttúrubarnaskólans og hluti af dagskrá tengdri menningararfsári Evrópu 2018, rétt eins og málþingið á laugardeginum, sem haldið er í samvinnu fjölda aðila.

Árið 2018 er tileinkað menningararfi Evrópu og strandmenning er þema ársins. Undir það fellur t.d. handverk, fornleifar, hús og mannvirki, gripir, bátar, sögur og ótal margt fleira.Markmið Menningararfsár Evrópu er að vekja athygli á og fagna fjölbreyttum menningararfi Evrópu, sem stendur traustum fótum í byggingarlist, fornleifum og fornum ritum en er þó í senn bráðlifandi í dag allt umhverfis okkur. Með því að gera menningararfi hátt undir höfði á árinu verður lögð áhersla á hvernig menningararfurinn byggir upp sterkari samfélög, skapar störf og hagsæld, er mikilvægur fyrir samskipti okkar við aðra hluta heimsins og hvað hægt er að gera til að vernda menningararf okkar.