Liðnir viðburðir

Ný sýning opnuð: Förufólk & flakkarar

Laugardaginn 26. júní kl. 14 var sýningin: Förufólk og flakkarar, opnuð á Sauðfjársetrinu í Sævangi. Sýningin segir frá förufólki sem flakkaði um Ísland fyrr á öldum. Þetta var fjölbreyttur og umtalaður hópur og í sögunum sem sagðar voru um þau, eru þau stundum líkari þjóðtrúarverum en raunverulegum manneskjum.

Þjóðfræðingarnir Dagrún Ósk Jónsdóttir og Jón Jónsson eru höfundar sýningarinnar og sögðu frá gerð hennar og förufólkinu við opnunina. Einnig var á boðstólum kaffihlaðborð í Sævangi á milli kl. 14-18 og var hvort tveggja hluti af dagskrá bæjarhátíðarinnar Hamingjudagar á Hólmavík, sem Sauðfjársetrið tekur jafnan þátt í. Nú var viðburðurinn á Sauðfjársetrinu færður frá sunnudegi fram á laugardag vegna veðurútlits með aðeins dags fyrirvara, svo undirbúningur við uppsetninguna var í nokkurri tímaþröng. Allt tókst þó í tæka tíð.

Á sýningunni eru textaspjöld, myndir og fróðleikur um förufólk. Textar á veggjum eru á íslensku, en á ensku í möppum. Einnig er leikin heimildamynd á sýningunni, leikþáttur sem Leikfélag Hólmavíkur tók þátt í að gera. Var hann tekinn upp í baðstofunni á Byggðasafninu á Reykjum. Sunneva Guðrún Þórðardóttir málaði mikla veggmynd á tvo veggi í sérsýningarherberginu.

Sýningin Förufólk & flakkarar

Hönnun, textagerð og uppsetning: Dagrún Ósk Jónsdóttir & Jón Jónsson
Umbrotsvinna: Jón Jónsson
Þýðingar: Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar
Veggmynd: Sunneva Guðrún Þórðardóttir
Myndefni: Að mestu leyti úr bókinni Á mörkum mennskunnar
Prentun: Pixel

Förufólk fyrir alda – leikin heimildamynd

Handrit leikinnar heimildamyndar: Jón Jónsson & Dagrún Ósk Jónsdóttir
Leikarar: Leikfélag Hólmavíkur – Eiríkur Valdimarsson, Sigfús Snævar Jónsson, Guðlaug G.I. Bergsveinsdóttir, Svanhildur Jónsdóttir og Jón Jónsson
Framleiðandi: Sauðfjársetur á Ströndum – Ester Sigfúsdóttir
Tökumaður og framkvæmdastjóri: Dagrún Ósk Jónsdóttir
Klipping & frágangur: Sigfús Snævar Jónsson & Dagrún Ósk Jónsdóttir
Tökustaður: Byggðasafnið á Reykjum (bestu þakkir fyrir að hleypa hópnum í baðstofuna)

Leikhópurinn í baðstofunni á Byggðasafninu á Reykjum – ljósmynd: Gunnar Rögnvaldsson