Liðnir viðburðir

Sjálfstætt fólk – bókakynning í Sævangi (2017)

Sagnfræðingurinn Vilhelm Vilhelmsson mætti á Sauðfjársetrið í Sævangi sunnudaginn 10. des. kl. 14, til að kynna bókina sína Sjálfstætt fólk. Vistarband og íslenskt samfélag á 19. öld. Bókin var nýlega tilefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fræðrita og bóka almenns efnis og er mikill fengur í heimsókn Vilhelms. Í bókinni er fjallað um togstreitu milli húsbænda og vinnufólks í sveitasamfélaginu, hversdagslegt andóf og óhlýðni. Hér er saga alþýðunnar sögð frá sjónarhorni hennar sjálfrar.

Á viðburðinum var á boðstólum heitt súkkulaði og vöffluhlaðborð, fyrir þá sem vildu.