Liðnir viðburðir

Spilavist (2017)

Haldin var félagsvist í Sævangi mánudagskvöldið 4. desember og hófst spilamennskan klukkan 20. Þetta var önnur félagsvistin sem haldin er í Sævangi í vetur. Veitingar eru innifaldar í þátttökugjaldi sem er kr. 1.300.- fyrir 13 ára og eldri og kr. 900 fyrir yngri. Sauðfjársetur á Ströndum stendur fyrir spilamennskunni.