Fréttir

Skemmtiferðaskip í heimsókn á Ströndum

Skemmtiferðaskipið Panorama hefur komið til Hólmavíkur í sumar og kom fyrst þann 13. júní með farþega, en um er að ræða skútu sem tekur mest 50 slíka. Þetta er fyrsta skipti sem Hólmavík er viðkomustaður í skipulagðri ferð slíkra skipa.

Farþegar nýttu ýmsa þjónustu í landi á meðan skipið stoppaði, fóru út að borða, versluðu handverk og skoðuðu söfn, auk þess sem þau fóru í skipulagða ferð með þjóðtrúarþema um nágrenni Hólmavíkur með leiðsögn frá Dagrúnu Ósk Jónsdóttir yfirnáttúrubarni og þjóðfræðing. Í þessum ferðum var jafnan staldrað við á Sauðfjársetrinu.