Liðnir viðburðir

Sögurölt: Hundadalur

Miðvikudaginn 14. ágúst var sögurölt í Hundadal í Miðdölum. Mæting var á hlaðinu á Neðri-Hundadal kl. 19:30. Sigursteinn bóndi þar leiddi röltið og sagði sögur tengdar Hundadal og Suðurdölum frá landnámi til okkar dags.

Söguröltin eru samstarfsverkefni Byggðasafns Dalamanna og Sauðfjárseturs á Ströndum. Sögurölt í Hundadal er það áttunda af tíu í sumar og það síðasta sem ráðgert er í Dölunum. Vikuna 19.-22. ágúst verður níunda söguröltið á Ströndum og í lok ágúst verður það síðasta á góðum stað, en hvorki á Ströndum eða í Dölum.