Liðnir viðburðir

Sögurölt: Gilsfjarðarbrekka

Tíunda og síðasta sögurölt sumarsins var í Gilsfjarðarbrekku miðvikudaginn 28. ágúst kl. 19:30. Mæting var á túninu móts við afleggjarann að bænum og gengið niður í fjöruna. Þar var sagt frá daglegu lífi í Gilsfjarðarbrekku, frá ábúendum, Steinadalsheiði, hrakningum og draugum. Vegalengdin var mjög stutt. Söguröltin er samstarfsverkefni Sauðfjárseturs á Ströndum og Byggðasafns Dalamanna.