Liðnir viðburðir

Sögurölt: Miðskógur í Miðdölum

Fimmtudaginn 15. júlí var sögurölt safnanna í Dölum og var gengið um Miðskóg í Miðdölum. Gangan hófst á hlaðinu í Miðskógi kl. 20. Gönguleiðin var um einn og hálfur kílómeter, en að hluta til á fótinn. Sagt verður frá fyrrum íbúum í Miðskógi, skoðaður stekkur, hugleitt um gaddavír og útsýnis notið. Söguröltin eru samstarfsverkefni Sauðfjárseturs á Ströndum og Byggðasafns Dalamanna. Öll sem áhuga hafa eru velkomin í sögurölt, þó ekki sé nema til að hitta mann og annan.