Liðnir viðburðir

Sögurölt: Víðidalsá við Steingrímsfjörð

Þriðjudagskvöldið 2. júlí var farið í vikulegt sögurölt sem Sauðfjársetrið og Byggðasafn Dalamanna standa fyrir í sumar. Að þessu sinni var gengið við bæinn Víðidalsá við Steingrímsfjörð á Ströndum, sagðar sögur og skoðaðar minjar, nátthagi, dys og eyðibýlið Bugastaðir sem fór í eyði snemma á öldum. Sögumaður var Jón Jónsson þjóðfræðingur. Mæting er á hlaðinu á Víðidalsá.