Liðnir viðburðir

Strandir 1918 og Stefán frá Hvítadal

Sunnudaginn 11. nóvember var sögusýningin Strandir 1918 opnuð í Sævangi kl. 15:00. Samhliða var haldin sögustund þar sem fjallað var um bókmenntir og menningarlíf á Ströndum 1918 og flutti Jón Jónsson þjóðfræðingur erindi um þetta efni. Sérstök áhersla var einnig lögð á ljóð og æfi Stefáns frá Hvítadal, en nú eru einmitt 100 ár síðan fyrsta ljóðabók hans kom út. Elfar Logi Hannesson frá Kómedíuleikhúsinu mætti á svæðið með nýja bók með úrvali ljóða Stefáns og segir frá skáldinu og nýju bókinni: Allir dagar eiga kvöld.

Einnig var fjallað um persónulegar heimildir frá þessum tíma og afrek Strandamanna á bókmenntasviðinu, ýmist frá þessum tíma eða þar sem fjallað er um hann.

Samstarfsaðilar Sauðfjárseturs á Ströndum um sögustundina og verkefnið Strandir 1918 eru m.a. Leikfélag Hólmavíkur, Grunnskólinn á Hólmavík, Fjölmóður – fróðskaparfélag á Ströndum, Kómedíuleikhúsið og Rannsóknasetur HÍ á Ströndum – Þjóðfræðistofa.

Uppbyggingarsjóður Vestfjarða, Safnasjóður og Fullveldi Íslands styrkja viðburði tengda Strandir 1918 á Sauðfjársetrinu.