Liðnir viðburðir

Þjóðtrúarkvöldvaka: Pestir og plágur

Stórmögnuð þjóðtrúarkvöldvaka var haldin á Sauðfjársetrinu í Sævangi laugardagskvöldið 11. september og var ágæt mæting. Kvöldvakan hófst kl. 20:30. Þemað að þessu sinni var Pestir og plágur, og voru flutt fróðleg erindi um þjóðtrú og sögur, siði og venjur, fyrr og nú. Auk þess var kynngimagnað kvöldkaffi á boðstólum og tónlistaratriði að venju.

Fyrirlesarar að þessu sinni voru :

Jón Jónsson og Eiríkur Valdimarsson: Gleymt en þó geymt: Lækningaaðferðir alþýðu fyrri alda
Dagrún Ósk Jónsdóttir: Flökkusagnir og faraldrar
Áki Guðni Karlsson: Dauðinn og Covid: Tækni, hefðir og verklag á kveðjustundu

Kristján Sigurðsson mætti með gítarinn og sá um tónlistina. Þjóðtrúarkvöldvökur í september hafa verið árlegur viðburður í samvinnu Sauðfjárseturs á Ströndum og Rannsóknaseturs HÍ á Ströndum – Þjóðfræðistofu síðustu árin! Kvöldvakan féll þó niður í fyrra, en nú var viðburðurinn haldinn í raunheimum, innan þeirra sóttvarnareglna sem giltu þegar að honum kemur.