Liðnir viðburðir

Þriðja sögurölt sumarsins: Klofningur og Kumbaravogur

Í sumar hafa Byggðasafn Dalamanna og Sauðfjársetur á Ströndum staðið saman að sögurölti í samvinnu við ýmsa aðila og hafa viðburðirnir verið mjög vel sóttir. Miðvikudaginn 11. júlí var þriðja söguröltið og að þessu sinni hófst það klukkan sjö. Upphafsstaður var við Klofning sem er við veginn fyrir strandir í Dalasýslu, yst á milli Skarðsstrandar og Fellsstrandar. Hringurinn fyrir strandir er alls 90 km langur um misgóða malarvegi. Röltið var um 2 km með öllum útúrdúrum, upp og niður.

Farið var upp á Klofning að hringsjá sem þar er og notið útsýnisins. Spjallað var m.a. um búsetu, strauma, siglingaleiðir og annað er kom upp í hugann varðandi eyjarnar fyrir mynni Hvammsfjarðar. Þá var rölt niður í Kumbaravog í landi Mela. Munnmæli eru um verslun Íra þar á fimmtándu öld. Kaupfélag Skarðsstrendinga hafði þar í upphafi aðsetur sitt. Þar er og húsmennskubýlið Grænanes. Síðan má ekki gleyma fuglalífi, útsýni og ægifögru sólarlagi þegar þannig stendur á.

Með sögum, spjalli og rölti tók gangan allt að tveimur tímum, en svo var líka í boði að láta sér Klofninginn nægja og halda síðan áfram ferð fyrir strandir. Söguröltið var einnig hluti af dagskrá evrópska menningararfsársins 2018, þar sem íslenska þemað er strandmenning. Meðfylgjandi ljósmynd af Kumbaravog er frá Valdísi Einarsdóttur.