Liðnir viðburðir

Dagur hinn villtu blóma í Sævangi

Sunnudaginn 17. júní er dagur hinna villtu blóma þetta árið. Að því tilefni var farið í gönguferð í nágrenni Sævangs og genginn hringur um holt og móa. Mæting kl. 14 og farið var hægt yfir og það var að venju Hafdís Sturlaugsdóttir sem sá um leiðsögnina. Gönguferðin á Degi hinna villtu blóma er samvinnuverkefni Náttúrubarnaskólans, Flóruvina, Náttúrustofu Vestfjarða og Sauðfjárseturs í Sævangi. Hópurinn skellti sér svo í þjóðhátíðarkaffi í Sævangi á eftir.