Liðnir viðburðir

Hrútadómar (2016) – Hadda Borg í Þorpum Íslandsmeistari

Um síðustu helgi fór Íslandsmeistaramótið í hrútadómum fram á Sauðfjársetri á Ströndum og var mikið um dýrðir. Fjöldi fólks kom þar saman að skoða hrútana, skrafa og skeggræða í dásemdar veðurblíðu. Alls tóku 75 keppendur þátt í mótinu að þessu sinni og áætlar starfsfólk Sauðfjársetursins að 400 manns hafi komið í heimsókn yfir daginn og vonandi haft gaman af.

Keppt er í tveimur flokkum, annars vegar vanir hrútadómarar sem kunna að stiga hrúta eftir öllum kúnstarinnar reglum og er keppt um Íslandsmeistaratitil í þeim flokki. Í hinum riðlinum keppa óvanir og hræddir hrútaþuklarar sem eiga að raða þessum sömu fjórum veturgömlum hrútum í gæðaröð og rökstyðja matið. Áður en keppnin hefst er dómnefnd jafnan búin að velja fjóra dálítið misjafna hrúta úr stærri hópi fyrir keppendur að leggja mat á, en í dómnefndinni að þessu sinni voru Jón Viðar Jónmundsson og Svanborg Einarsdóttir ráðunautur.

Það var Hadda Borg Björnsdóttir á Þorpum við Steingrímsfjörð, 23 ára Strandamær, sem stóð að þessu sinni uppi sem sigurvegari og Íslandsmeistari í hrútaþukli. Hún er fyrsta konan sem vinnur Íslandsmeistaratitilinn í þessari árlegu keppni frá því hún var fyrst haldin árið 2003 og jafnframt langyngsti sigurvegarinn. Hún var farin af svæðinu þegar verðlaunaafhending fór fram, var að leiðinni á Kirkjubæjarklaustur eftir keppnina. Faðir hennar Björn Pálsson tók við verðlaunum fyrir hennar hönd.

Í öðru sæti í flokki vanra varð Jón Jóhannsson bóndi á Þverfelli í Saurbæ í Dölum og jafnir í þriðja sæti urðu Haraldur V.A. Jónsson á Hólmavík, Elfar Stefánsson í Bolungarvík og Kristján Albertsson á Melum í Árneshreppi, en sá síðastnefndi hefur áður sigrað fjórum sinnum í þessari skemmtilegu og sérstæðu keppni. Elfar hefur einnig náð að landa Íslandsmeistaratitlinum einu sinni.

Í flokki óvanra hrútaþuklara sigruðu mæðgurnar Íris Ingvarsdóttir, Þórdís og Lóa, sem búsettar eru í Reykjavík. Þær voru farnar er verðlaunaafhendingin fór fram. Í öðru sæti var drengur sem heitir Halldór Már (við þekkjum því miður ekki nánari deili á honum, en efnilegur er hann!). Í þriðja sæti voru svo þrír Strandamenn og náttúrubarnaskólateymi sem vann saman, Marinó Helgi Sigurðsson á Hólmavík, Ólöf Katrín Reynisdóttir í Miðdalsgröf og Þórey Dögg Ragnarsdóttir á Heydalsá.

Vanir hrútaþuklarar:

  1. Hadda Borg Björnsdóttir, Þorpum í Strandabyggð
  2. Jón Jóhannsson, Þverfelli í Saurbæ í Dölum
  3. Haraldur V.A. Jónsson á Hólmavík, Elvar Stefánsson í Bolungarvík og Kristján Albertsson á Melum.

Óvanir hrútaþuklarar:

  1. Íris Ingvarsdóttir, Þórdís og Lóa, í Reykjavík
  2. Halldór Már
  3. Marinó Helgi Sigurðsson á Hólmavík, Ólöf Katrín Reynisdóttir í Miðdalsgröf og Þórey Dögg Ragnarsdóttir á Heydalsá.

Á hrútadómunum var einnig haldið líflambahappdrætti þar sem í vinninga voru frábær líflömb frá bændum á Ströndum, við Djúp og í Reykhólasveit. Ljómandi góð þátttaka var í happdrættinu. Einnig var sirkustjald Strandakúnstar uppi og sölumarkaður í því þar sem handverk og góðgæti var á boðstólum.