Liðnir viðburðir

Sögurölt: Ásgarðsstapi

Í þriðja sögurölti sumarsins var gengið á Ásgarðsstapa í Hvammssveit. Röltið var mánudaginn 20. júlí og hófst kl. 19:30 við afleggjarann að Ásgarði. Í stapanum búa álfar og var sagt frá samskiptum þeirra við okkur mannverurnar, auk þess sem Ásgarðsfeðgar sögðu frá og sýndu annað markvert á leiðinni.

Í göngunni er meðal annars farið um mýrlendi og því var mælt með skóbúnaði við hæfi, vaðstígvélum eða góðum gönguskóm. Í heild voru gengnir um 2,5 km.

Sögurölt er samstarfsverkefni Byggðasafns Dalamanna og Sauðfjárseturs á Ströndum. Strandamenn, Dalamenn og aðrir góðir gestir eru velkomnir.