Hrútaþuklið í Sævangi – margar góðar minningar!
Ein af afleiðingum Covid 19 er að stórviðburðir þar sem fólk hittist og snertist, á innihaldsrík samtöl og samskipti, hafa nú fallið niður tvo ágústmánuði í röð, 2020 og 2021. Þetta á við um margar merkilegar samkomur, Fiskidaginn mikla á Dalvík, Act Alone á Suðureyri, Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og Íslandsmeistaramótið í hrútadómum í Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum. Þetta er auðvitað bagalegt og áfall fyrir fólk og margir þurfa að bera harm sinn í hljóði.
Sauðfjársetrið hefur haldið Íslandsmót í hrútaþukli árlega frá 2003, en þá fundu Strandamenn þessa íþróttagrein upp. Síðasta hrútaþuklið var haldið 2019 og næsta verður haldið í ágúst 2022. Okkur datt í hug að þangað til gæti fólk sem saknar þessara góðu stunda kannski skemmt sér við að skoða myndir og rifja upp fyrri tíma. Þess vegna bjuggum við dálítið tenglasafn á umfjöllun um fyrri keppnir og myndir frá þeim sem við höfum miðlað á vef Sauðfjársetursins.
2003 – Meistarmót í hrútadómum
2004 – Meistaramót í hrútadómum
2005 – Hrútaþuklið – Björn Þormóður vann
2006 – Hrútadómar – Kristján á Melum vann
2007 – Hrútadómar – Kristján á Melum sigraði aftur
2008 – Hrútadómar – Björn á Melum Íslandsmeistari
2009 – Hrútaþuklið – Guðbrandur á Smáhömrum sigraði
2010 – Hrútaþuklið – Elvar Stefánssson Íslandsmeistari
2011 – Hrútadómar – Guðbrandur Sverrisson Íslandsmeistari
2012 – Íslandsmót í hrútaþukli
2013 – Íslandsmeistaramót í hrútadómum – stórhátíð
2014 – Hrútaþuklið – Björn Þormóður Íslandsmeistari
2015 – Hrútadómar – Guðmundur á Kjarlaksvöllum vann!
2016 – Hrútadómar – Hadda Borg í Þorpum Íslandsmeistari
2017 – Íslandsmeistaramót í hrútaþukli
2018 – Íslandsmeistaramótið í hrútadómum
2019 – Íslandsmótið í hrútadómum
Hrútadómarnir sjálfir fara þannig fram að ráðunautur fer fyrir dómnefnd sem metur fjóra íturvaxna en dálítið misjafna hrúta með nútíma tækjum og tólum. Nýjustu tækni og vísindum er þannig beitt til að raða þeim í gæðaröð fyrirfram. Við höfum verið svo heppnin að margir ráðunautar hafa lagt okkur lið og verið í dómnefnd. Fyrstu árin sá Jón Viðar Jónmundsson um að leiða dómnefndina og síðan hafa margir aðrir komið við sögu og eiga bestu þakkir skyldar fyrir vikið. Án framlags þeirra (og auðvitað hrúta og hrútaeigenda) væri engin keppni.
Síðan reyna keppendur sig við meta sömu hrúta með hendurnar og hyggjuvitið að vopni og reyna að komast að sömu niðurstöðu og dómararnir. Þarna er semsagt um að ræða keppni milli mannfólks í hrútaþukli, en ekkert endilega valdir bestu hrútarnir, enda eru þeir alls ekkert að keppa sín á milli eins og á hrútasýningum í gamla daga. Vanir þuklarar sem keppa um Íslandsmeistaratitilinn gefa hrútunum stig fyrir ýmsa eiginleika, hryggurinn skiptir náttúrulega miklu máli og lærin sem eru tvö á hverjum hrút þó þeir séu með fjóra fætur vega þungt. Bændur gjörþekkja það stigakerfi sem notað er við þetta mat, það er notað til að velja ásetningshrúta á haustin.
Þeir sem óvanir eru eða jafnvel hræddir við hrútana, láta hins vegar duga að raða hrútunum í sæti frá eitt til fjögur og færa síðan rök fyrir máli sínu á keppnisblað sem skilað er inn til dómnefndar. Röksemdirnar mega vera hvernig sem er, bæði til gamans eða í fúlustu alvöru. Oft sér maður að hegðun, atferli og framkoma hrútanna á keppnisstað hefur mikil áhrif á keppendur í þessum flokki. Sumir líta til íhaldsmannanna sem halda hver í sinn hrút og það kemur fyrir að útlit þeirra og eiginleikar hafa áhrif á matið á hrútunum. Veglegir vinningar eru í boði fyrir sigurvegara í báðum flokkum. Sigurvegarinn í flokki vanra er Íslandsmeistari í hrútaþuklinu og fær verðlaunagripinn Horft til himins til varðveislu í eitt ár, en hann er tileinkaður Brynjólfi Sæmundssyni sem var ráðunautur á Ströndum í um 40 ár.
Það merkilega er að sumir hafa betri tök á þuklinu en aðrir. Kristján Albertsson á Melum í Árneshreppi hefur oftast unnið keppnina, alls fjórum sinnum 2006, 2007, 2012 og 2013. Björn Torfason á Melum í Árneshreppi hefur einnig sigrað tvisvar og Guðbrandur Sverrisson á Bassastöðum í Kaldrananeshreppi. Einu sinni hefur kona sigrað í hrútaþuklinu, Hadda Borg Björnsdóttir á Þorpum í Standabyggð.
Stundum hefur Íslandsmeistarinn líka verið búsettur utan Stranda, en það líkar Strandamönnum ekki eins vel. Þá keppast heimamenn um vinna titilinn og verðlaunagripinn til baka og halda honum á svæðinu. Í hópi þeirra sem hafa unnið tvisvar er Björn Þormóður Björnsson á Ytra-Hóli í Austur-Húnavatnssýslu. Hann hefur góð tök á þuklinu og er erfiður við að eiga fyrir Strandamenn.
Íslandsmeistarar í hrútaþukli frá upphafi:
2019: Jón Þór Guðmundsson, Galtarholti í Hvalfjarðarsveit
2018: Ragnar Bragason, Heydalsá í Strandabyggð
2017: Guðbrandur Sverrisson, Bassastöðum í Kaldrananeshreppi
2016: Hadda Borg Björnsdóttir, Þorpum í Strandabyggð
2015: Guðmundur Gunnarsson, Kjarlaksvöllum í Saurbæ
2014: Björn Þormóður Björnsson, Ytra-Hóli í Austur-Húnavatnssýslu
2013: Kristján Albertsson, Melum í Árneshreppi
2012: Kristján Albertsson, Melum í Árneshreppi
2011: Guðbrandur Sverrisson, Bassastöðum í Kaldrananeshreppi
2010: Elvar Stefánsson, Bolungarvík
2009: Guðbrandur Björnsson, Smáhömrum í Strandabyggð
2008: Björn Torfason, Melum í Árneshreppi
2007: Kristján Albertsson, Melum í Árneshreppi
2006: Kristján Albertsson, Melum í Árneshreppi
2005: Björn Þormóður Björnsson, Ytra-Hóli í Austur-Húnavatnssýslu
2004: Eiríkur Helgason, Stykkishólmi, og Björn Sigurvaldason, Litlu-Ásgeirsá í Húnaþingi vestra
2003: Björn Torfason, Melum í Árneshreppi